Vinabæjarmót í Fjarðabyggð í október
Vinabæjarmót fimm norrænna sveitarfélaga verður haldið í Fjarðabyggð í október. Auk Fjarðabyggðar koma þangað fulltrúar frá Eskilstuna í Svíþjóð, Esbjerg í Danmörku, Stavanger í Noregi og Jyväsklä í Finnlandi.
Gosið á ekki að raska flugi verulega
Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands, segir ekki miklar líkur á að flugleiðir lokist skyndilega miðað við þann kraft sem er í eldgosinu í Fimmvörðuhálsi. Flugstjórnamiðstöð Flugstoða stýrir hvar má fljúga og hvað ekki.
Elvar leiðir Fjarðalistann
Elvar Jónsson, kennari í Neskaupstað, leiðir lista Fjarðalistans í komandi sveitastjórnarkosningum. Smári Geirsson, fráfarandi bæjarfulltrúi, skipar heiðurssætið. Konur eru í meirihluta á framboðslistanum.
Erfið færð í morgunsárið
Snjókoma og fannfergi var á fjallvegum sem voru ófærir um allt Austurlandi í morgun. Einnig var erfið færð víða innanbæjar eftir veðurham næturinnar.Nýr leiðtogi Héraðslistans
Tjörvi Hrafnkelsson, hugbúnaðarsérfræðingur, sigraði í dag í forvali Héraðslistans og mun því leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum í vor. Talning fór fram síðdegis.Póstbíll valt í Fáskrúðsfirði
Póstflutningbíll á vegum Íslandspósts valt útaf veginum við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð í morgun.Sýndu snarræði og björguðu lífi sjö ára drengs
Guðlaugur Haraldsson og Kristján Vigfússon björguðu á laugardag lífi sjö ára drengs sem varð undir grjóti í Grjótá í Eskifirði. Eftir nokkrar tilraunir náðist drengurinn upp úr ánni, helblár og meðvitundarlaus.
Vegagerðin auglýsir drög að matsáætlun
Vegagerðin hefur auglýst drög að tillögu að matsáætlun á Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal. Vegurinn er kallaður í daglegu tali Snæfellsleið og liggur frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal inn að Snæfelli.Sauðfjárbændur veita Klettinn
Félag sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum hélt aðalfund sinn nýlega. Eftir fundinn veitti félagið verðlaunagripinn Klettinn í fyrsta sinn. Kletturinn er veittur fyrir hæst stigaða lambhrútinn á félagssvæðinu.Fjandsamlegar úthlutunarreglur byggðakvóta?
Sveitastjórn Djúpavogshrepps er afar ósátt við að engum byggðakvóta var úthlutað í byggðarlagið á yfirstandandi fiskveiðiári.
Flugvöllurinn á Egilsstöðum sá eini sem er opinn
Flugvöllurinn á Egilsstöðum er nú eini alþjóðlegi flugvöllurinn á Íslandi sem er opinn fyrir umferð. Flugvöllunum í Keflavík, Reykjavík og á Akureyri hefur verið lokað eftir að eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi seint í gærkvöldi.