Langferð hjá karlaliði Fjarðabyggðar
Karlalið Fjarðabyggðar þarf að leggja upp í langferð í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu því liðið dróst á móti Víkingi Ólafsvík. Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis leikur gegn Akureyringum. Höttur er einn á toppnum í 2. deild karla og Leiknir vann Huginn í Austfjarðaslag í þriðju deild um helgina.