Niðurstöður mengunarmælinga á Seyðisfirði ljósar eftir helgi
Fyrr í vikunni varð vart við hugsanlega mengun í neysluvatni við Strandarveg á Seyðisfirði en nú hefur Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) staðfest að þar er mengun til staðar. Sjóða verður allt vatn í það minnsta framyfir helgina.
Hafbjörg dró vélarvana bát til Norðfjarðar
Hafbjörg, skip björgunarsveitarinnar Gerpis í Neskaupstað, kom laust fyrir klukkan fimm í dag með smábát til hafnar sem missti afl fyrir mynni Seyðisfjarðar.„Samtal og samvinna tekur tíma ef útkoman á að vera farsæl“
Formaður Skólastjórafélags Íslands, segist sáttur við úrlausn mennta- og barnamálaráðuneytisins við kvörtun félagsins vegna breytinga á skipulagi fræðslumála í Fjarðabyggð. Hann vonast til að nú hefjist það samráð sem krafist sé í lögum og það leiði til farsællar úrlausnar.Ekki alls staðar hægt að plokka fyrir snjó
Á sunnudaginn kemur fer fram á landsvísu Stóri plokkdagurinn sem af gárungum er gjarnan kallað gönguferð með tilgang enda valsa áhugasamir þá um og hirða upp rusl samhliða heilsusamlegum göngutúr. Sú dagsetning gengur þó ekki upp alls staðar sökum snjóalaga og skafla á stöku stöðum.
Eldur í þurrkgámum Skógarafurða
Slökkvilið Múlaþings var á sjöunda tímanum í kvöld kallað út vegna elds í gámum þar sem timbur er þurrkað við starfsstöð Skógarafurða á bænum Víðivöllum Ytri II í Fljótsdal.Vatnsmengun við Strandarveg á Seyðisfirði
Starfsfólk fyrirtækja við Strandarveg á Seyðisfirði veitti því athygli fyrr í vikunni að óvenjuleg og undarleg lykt fylgdi allt í einu vatninu úr krönum á svæðinu. Í kjölfarið tók HEF-veitur sýni sem leiddu í ljós mengun.