Þjóðkirkja og biskup

Um þessar mundir hlotnast ríflega 2.000 meðlimum þjóðkirkjunnar, vígðum þjónum, sóknarnefndarfólki og fulltrúum kjörnum á aðalfundum sókna, sá heiður að velja Þjóðkirkjunni nýjan biskup. Þetta er ábyrgðarhlutverk og ég treysti því að allir sem hafa kosningarétt ákveði að nýta hann, nú í annarri umferð kjörsins þar sem tveir tilnefndir fulltrúar standa eftir.

Ég er ekki einn þeirra sem hef kosningarétt, en ég er meðlimur í Þjóðkirkjunni, tek þátt í starfi hennar og hún skiptir mig verulegu máli. Þess vegna skiptir það mig einnig máli hver velst til þess að leiða kirkjuna í embætti biskups og ég hef á því skoðun.

Ég hef þekkt til séra Guðmundar Karls Brynjarssonar frá því ég var unglingur. Ég hef séð til hans vinna með ungu fólki í æskulýðsstarfi, ég hef fylgst með honum úr fjarlægð vinna að uppbyggingu fádæma öflugs kirkjustarfs í Lindasókn í Kópavogi, starfs sem hófst í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni þar sem kirkjan var enn ekki risin. Ég hef nýtt sjálfur og notið fræðslu- og skemmtiefnis fyrir börn sem hann hefur staðið fyrir gerð á og sýnir svo vel hvernig honum er umhugað um að kirkjan nái til allra aldurs- og þjóðfélagshópa.

Fyrir mér er Gummi Kalli eins og kirkjan sem ég vil tilheyra. Hann er einlægur, kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Hann hefur mætt áskorunum og sigrast á þeim með trúna á Jesú Krist sér til halds og trausts. Hann er ófeiminn við að vera sá sem hann er, sama hvað öðrum finnst. Þannig á kirkjan að vera og þannig skulum við gera hana.

Ég hvet öll þau sem hafa kosningarétt 2.-7. maí til að kjósa séra Guðmund Karl Brynjarsson í embætti biskups Íslands.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.